Plötudómur: Gylfi og Gerður - Fullur máni (Gylfi Ægisson, 2001)

Gylfi Ægisson er öllum vel kunnur. Hann hefur leikið og sungið inn á fjölda hljómplatna á síðastliðnum 30 árum en hefur sjálfsagt aldrei verið betri en einmitt núna um þessar mundir. Það er sennilega ekki síst að þakka unnustu hans, Gerði Gunnarsdóttur (sem hann er reyndar skilinn við núna), þeim vinsældum en hún hefur verið hans stoð og stytta í tónlistasköpun sinni undanfarin misseri.
Fullur máni er tíu laga hljómdiskur með þeim skötuhjúum, sem kom út árið 2001 og skartar, við fyrstu hlustun, fjölda smella og má með sanni segja að það sé ekki eitt slakt lag á disknum. Við frekari hlustun staðfestist eingöngu fyrrnefnd orð og festir þau í sessi.
Platan byrjar á hinu fallega “Fullur máni”, sem er grípandi slagari (a-f-e-f-a) undir áhrifum amerísks Washingtons-kántrýs en einnig má greina undir klassíska, finnska, nútíma-alþýðubarrokkstefnu, sérstaklega í viðlagi. Sama má segja um “Frá því fyrst ég sá þig” og “Til þín”, þar sem ásláttasamhljómarnir mynda alls staðar frekar hátt hlutfall í inntakti (2/5-b-f-e-h) en eru samt ekki endilega til baga. Hefði þó verið hægt að lagfæra það í innbyrðis hljómjöfnunartaktinum. Lagið “Gróa á leiti” (f-c-g-d-p) og “Í faðmi þér” (b-a-r-a-b-b-c) falla hins vegar ekki í þá gryfju. Stílvitundarfræðin myndi eðlilega kalla á asíska brass-sónötu, í fyrra laginu en Gylfi ákveður að vera þar frekar fylgjandi nútímastefnu í þýskri blökkumannatónlist. “Akureyrartogararnir” (a-d-d-a-á-b-a-l-a) er falleg þjóðlaga-ballaða í blús-stíl og “Fæðing” (c-c-c-d-g-VII-b) er rockabilly-slagari með greinilegum áhrifum frá hollenskri sembaltónlist frá miðöldum, þar sem ákveðin taktvillustefnumótun á sér greinilega djúpar rætur, sérstaklega í byrjun millikafla. Í laginu “Ég skotin er þér í” (e-f-e-g-g-a-l-a) bregður við allt annan tón. Þetta er róleg ballaða með gullfallegu ástarljóði (sömdu til Gerðar) sem snertir hvern þann sem á hlýðir. Það er í angurværum sígaunatakti (greinilega suður-márítískum), eingöngu spilað á bassa, óbó og kotru en hefði hugsanlega getað orðið fullkomið hefði það verið haft hálfri sjöund neðar.
Ekki hefur enn verið minnst á söng þeirra hjúa á plötunni en í heildina er hann afskaplega vel heppnaður. Gylfi hefur áberandi djúpan (eilítið titrandi í c og f) bariton-róm sem sómir sér einstaklega vel með skærum bassa-falsettum Gerðar. Þannig koma þau einkar vel frá söng sínum sem fellur frábærlega vel að fallegri lagasmíð og hnyttnum ljóðagerðum Gylfa.
Úrskurður: Einstaklega vel heppnaður gripur, sem á erindi á hvert heimili landsmanna. Hiklaust 9 stjörnur af 10.

3 Comments:
Ég á þessa. Frábær diskur!
Og mjög vandað plötuumslag, eina sem þurfti var uhu og skæri.
您的意見已儲存。
要讓您的意見顯示在網站上可能需要一些時間
Hvað er málið með þessa kínversku?
Sendu inn athugasemd
<< Home